Um Augnamið

Augnamið er fræðslufyrirtæki í eigu Sigrúnar Líndal Pétursdóttur og Inga Sturlu Þórissonar.


Augnamið er fyrir öll sem vilja auka vellíðan, vaxa, efla styrk, tengsl og lífsgæði almennt. Fyrirtækið sérhæfir sig í fyrirlestrum, vinnustofum, námskeiðum og markþjálfun fyrir breiðan hóp. Við vinnum meðal annars með einstaklingum, pörum, foreldrum, börnum, unglingum, hópum og fyrirtækjum.


Sigrún Líndal Pétursdóttir stofnandi og eigandi

Sigrún Líndal Pétursdóttir er með B.A. gráðu í sálfræði og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Vorið 2025 lauk Sigrún diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.


Sigrún hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum og starfaði í mörg ár á leikskóla meðal annars sem deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri. Hún hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og aðstoðarkennari í Sáttamiðlun sem kennd var í meistaranámi í Háskóla Íslands. Síðustu ár hefur hún starfað sem flugfreyja en ævintýraþrá, þörf á nýjum áskorunum og vaxtarhugarfar varð til þess að  flugfreyjustarfið kallaði á hana.


Vellíðan, vöxtur, hugrekki og styrkleikar eru henni mjög hugleikin og hefur hún í gegnum nám og störf lagt sig fram af einlægni  í  að virkja og aðstoða aðra í að vaxa og blómstra.

Ingi Sturla Þórisson stofnandi og eigandi

Ingi Sturla Þórisson hefur í störfum sínum í flug-, orku- og fjármálageiranum leitt teymi til árangurs í mörg ár. Ingi Sturla er menntaður í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands en hefur verið iðinn við að afla sér aukinnar menntunar á þeim sviðum sem honum eru hvað mest hugleikin og er hann til að mynda viðurkenndur markþjálfi, hefur starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og með meistaradiplómu í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun HÍ.


Með áratuga reynslu úr mörgum geirum atvinnulífsins hefur Ingi Sturla lært að samskipti eru upphaf og endir alls. Orð eru nefnilega til alls fyrst. Það að geta komið hugmyndum, skoðunum og tilfinningum sínum í orð á uppbyggilegan og mennskan hátt ásamt því að geta sett sig í spor annarra hefur gríðarlega jákvæð áhrif á samvinnu og árangur.