Næstu námskeið og vinnustofur
Við sérsníðum einnig námskeið og vinnustofur eftir þörfum hvers hóps
Samferða - Vellíðan í vexti
Vinnustofan er hönnuð fyrir pör sem vilja taka skrefið saman í átt að aukinni vellíðan og vexti. Á vinnustofunni gefst pörum tækifæri til að skoða samband sitt í nýju ljósi og efla tengsl og ánægju með því að fá innsýn og kennslu í þeim aðferðum sem nýtast til að hlúa að, næra og styrkja sambandið.
Leikjanámskeið - Vöxtur og vinátta
Skapandi og skemmtilegt leikjanámskeið fyrir börn (f. 2015-2016). Lögð er áhersla á styrkleika, gróskuhugarfar, tilfinningagreind, tjáningu, samkennd og félagsleg tengsl í gegnum hreyfingu, leik og náttúru.
Konur - Kraftur og kyrrð
Þetta tveggja skipta valdeflandi námskeið er ætlað öllum konum sem vilja staldra við, horfa inn á við og rækta með sér innri styrk, auka sjálfstraust og sjálfsumhyggju í hlýlegu umhverfi.
Jákvæð sálfræði fyrir 60+
Á þessu námskeiði fá einstaklingar 60 ára og eldri tækifæri til að kynnast jákvæðri sálfræði og hagnýtum leiðum til að auka eigin vellíðan og hamingju. Áhersla er lögð á meðvitund um eigin styrkleika og mikilvægi þakklætis. Þátttakendur læra hvernig á að iðka og tjá þakklæti á markvissan og áhrifaríkan hátt sem og öðlast færni í að rækta jákvæðar tilfinningar. Áhersla er einnig lögð á mikilvægi félagslegra tengsla og kenndar hagnýtar aðferðir til að efla tengsl við aðra.