Leikjanámskeið - Vöxtur og vinátta (Næsta námskeið: Júní 2026)
Um námskeiðið:
Skapandi og skemmtilegt leikjanámskeið fyrir börn (f. 2015-2016). Lögð er áhersla á styrkleika, gróskuhugarfar, tilfinningagreind, tjáningu, samkennd og félagsleg tengsl í gegnum hreyfingu, leik og nátttúru.
Það sem unnið er með á námskeiðinu:
- Að börn læri að þekkja og nýta eigin styrkleika
- Að efla sjálfstraust og trú á eigin getu
- Að kenna og þjálfa gróskuhugarfar
- Að auka tilfinningalæsi og tjáningu
- Að efla samkennd og virðingu fyrir tilfinningum annarra
- Að styrkja félagsleg tengsl
Ávinningur námskeiðsins:
Með þátttöku í námskeiðinu fá börn tækifæri til að þjálfa sig í að byggja upp traust og góð tengsl við aðra. Þau fá innsýn í hvernig mistök geta verið eðlilegur og lærdómsríkur hluti af þroskaferlinu og hvernig slík nálgun getur styrkt seiglu, sjálfstraust og trú á eigin getu.
Einnig gefst þeim kostur á að æfa sig í að tjá eigin tilfinningar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt, sem og að auka skilning sinn á tilfinningum annarra.
Sigrún Líndal Pétursdóttir stofnandi og eigandi
Sigrún Líndal Pétursdóttir er með B.A. gráðu í sálfræði og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Vorið 2025 lauk Sigrún diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sigrún hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum og starfaði í mörg ár á leikskóla meðal annars sem deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri. Hún hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og aðstoðarkennari í Sáttamiðlun sem kennd var í meistaranámi í Háskóla Íslands. Síðustu ár hefur hún starfað sem flugfreyja en ævintýraþrá, þörf á nýjum áskorunum og vaxtarhugarfar varð til þess að flugfreyjustarfið kallaði á hana.
Vellíðan, vöxtur, hugrekki og styrkleikar eru henni mjög hugleikin og hefur hún í gegnum nám og störf lagt sig fram af einlægni í að virkja og aðstoða aðra í að vaxa og blómstra.
