Jákvæð sálfræði fyrir 60+
Um námskeiðið:
Á þessu námskeiði fá einstaklingar 60 ára og eldri tækifæri til að kynnast jákvæðri sálfræði og hagnýtum leiðum til að auka eigin vellíðan og hamingju. Áhersla er lögð á meðvitund um eigin styrkleika og mikilvægi þakklætis. Þátttakendur læra hvernig á að iðka og tjá þakklæti á markvissan og áhrifaríkan hátt sem og öðlast færni í að rækta jákvæðar tilfinningar. Áhersla er einnig lögð á mikilvægi félagslegra tengsla og kenndar verða hagnýtar aðferðir til að efla tengsl við aðra.
Það sem unnið er með á námskeiðinu:
- Kynna þátttakendum grundvallaratriði jákvæðrar sálfræði og aðferðir hennar til að auka velllíðan og hamingju sem stuðlar að auknum lífsgæðum
- Stuðla að aukinni meðvitund um eigin styrkleika
- Kynna mikilvægi þakklætis og jákvæð áhrif þess á andlega vellíðan, ásamt því að kenna leiðir til að iðka og tjá þakklæti á markvissan og áhrifaríkan hátt í daglegu lífi.
- Auka meðvitund þátttakenda um mikilvægi jákvæðra tilfinninga
- Efla skilning á mikilvægi og áhrifum félagslegra tengsla á andlega og líkamlega heilsu, ásamt því að auka færni í að rækta og styrkja þau í eigin lífi.
Ávinningur námskeiðsins:
Á námskeiðinu fá þátttakendur tækifæri til að kynnast aðferðum sem geta stuðlað að aukinni vellíðan. Með því að öðlast betri skilning á eigin styrkleikum og hvernig hægt er að nýta þá í daglegu lífi, má stuðla að auknu sjálfstrausti og vellíðan. Þátttakendur fá tækifæri til að staldra við, rifja upp hvað skiptir máli og læra um einfaldar en áhrifaríkar leiðir til að rækta jákvæðar tilfinningar og tengsl við aðra.
Tímasetning:
Námskeiðið verður haldið á laugardögum frá kl. 10:00-12:00, 13. og 20. september nk.
Verð: 22.900 kr.
Leiðbeinendur: Sigrún Líndal Pétursdóttir og Ingi Sturla Þórisson
Sigrún Líndal Pétursdóttir stofnandi og eigandi
Sigrún Líndal Pétursdóttir er með B.A. gráðu í sálfræði og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Vorið 2025 lauk Sigrún diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sigrún hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum og starfaði í mörg ár á leikskóla meðal annars sem deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri. Hún hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og aðstoðarkennari í Sáttamiðlun sem kennd var í meistaranámi í Háskóla Íslands. Síðustu ár hefur hún starfað sem flugfreyja en ævintýraþrá, þörf á nýjum áskorunum og vaxtarhugarfar varð til þess að flugfreyjustarfið kallaði á hana.
Vellíðan, vöxtur, hugrekki og styrkleikar eru henni mjög hugleikin og hefur hún í gegnum nám og störf lagt sig fram af einlægni í að virkja og aðstoða aðra í að vaxa og blómstra.
Ingi Sturla Þórisson stofnandi og eigandi
Ingi Sturla Þórisson hefur í störfum sínum í flug-, orku- og fjármálageiranum leitt teymi til árangurs í mörg ár. Ingi Sturla er menntaður í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands en hefur verið iðinn við að afla sér aukinnar menntunar á þeim sviðum sem honum eru hvað mest hugleikin og er hann til að mynda viðurkenndur markþjálfi, hefur starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og með meistaradiplómu í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun HÍ
Með áratuga reynslu úr mörgum geirum atvinnulífsins hefur Ingi Sturla lært að samskipti eru upphaf og endir alls. Orð eru nefnilega til alls fyrst. Það að geta komið hugmyndum, skoðunum og tilfinningum sínum í orð á uppbyggilegan og mennskan hátt ásamt því að geta sett sig í spor annarra hefur gríðarlega jákvæð áhrif á samvinnu og árangur.