Hvað er markþjálfun?

Markþjálfun (e. coaching) er markviss samtalsaðferð sem styður einstaklinga, pör og hópa við að skýra markmið, efla sjálfstraust og ábyrgð, og þróa eigin lausnir og næstu skref í átt að jákvæðum og varanlegum breytingum.


Markþjálfi er ekki sá sem segir þér hvað þú átt að gera heldur sá sem spyr réttu spurninganna svo þú finnir svörin þín og leiðina að þeim.


Markþjálfun er ekki um að laga þig heldur að virkja það besta í þér.

Ferli markþjálfunar

 Í markþjálfun vinnum við saman að því að:


  • Skilgreina hvað þú vilt og af hverju
  • Kanna hvað stendur í vegi þínum og hvernig þú getur tekist á við það
  • Að finna næstu skref og fara af stað með aukna festu og sjálfstraust


Markþjálfun er engin töfralausn heldur ferli sem byggir á trausti, hlustun og kraftmiklum spurningum. ÞÚ ert alltaf í bílstjórasætinu.

Hvers vegna markþjálfun?

Ef þú:

  • Vilt finna þína stefnu í lífi, starfi eða námi
  • Vilt efla sjálfstraust og treysta eigin ákvörðunum
  • Ert að stíga inn í nýtt hlutverk eða tímabil í lífinu
  • Vilt bæta samskipti og tengsl við aðra
  • Finnur fyrir stöðnun
  • Vilt styrkja þig án þess að þurfa að „laga“ eitthvað


Þá er markþjálfun klárlega málið fyrir þig

Bóka tíma