Samferða - vellíðan í vexti
Um vinnustofuna:
Vinnustofan er hönnuð fyrir pör sem vilja taka skrefið saman í átt að aukinni vellíðan og vexti. Á vinnustofunni gefst pörum tækifæri til að skoða samband sitt í nýju ljósi og efla tengsl og ánægju með því að fá innsýn og kennslu í þeim aðferðum sem nýtast til að hlúa að, næra og styrkja sambandið.
Það sem unnið er með á vinnustofunni:
- Jákvæðar tilfinningar, mikilvægi þeirra og hvernig megi rækta þær
- Að þekkja og meta styrkleika sína og maka síns til að auka skilning, virðingu og samvinnu, sjálfstraust og vellíðan
- Að læra að iðka og tjá þakklæti á áhrifaríkan hátt sem dýpkar tengsl og eykur vellíðan
- Að kynnast mikilvægi virkrar hlustunar og öðlast færni í að hlusta af athygli, hlýju og virðingu
- Orkustjórnun – að átta sig á hvað gefur og hvað tekur orku og hvernig hægt sé að styðja hvort annað í að skapa jafnvægi í daglegu lífi
Ávinningur vinnustofunnar:
Í heildina veitir vinnustofan pörum hagnýt verkfæri og rými til að styrkja sambandið á nærandi og uppbyggilegan hátt. Sameiginleg þátttaka á vinnustofunni getur styrkt bæði sambandið og einstaklingana sjálfa, þar sem aukinn skilningur, virðing og samvinna skapa gjarnan traustari grunn fyrir dýpri tengsl og meiri vellíðan.
Tímasetning:
Vinnustofan er haldin einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn í fjórar vikur og hefst vinnustofan mánudaginn 8. september nk.
Verð: 39.900 kr.
Leiðbeinendur: Sigrún Líndal Pétursdóttir og Ingi Sturla Þórisson
Sigrún Líndal Pétursdóttir stofnandi og eigandi
Sigrún Líndal Pétursdóttir er með B.A. gráðu í sálfræði og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Vorið 2025 lauk Sigrún diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sigrún hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum og starfaði í mörg ár á leikskóla meðal annars sem deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri. Hún hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og aðstoðarkennari í Sáttamiðlun sem kennd var í meistaranámi í Háskóla Íslands. Síðustu ár hefur hún starfað sem flugfreyja en ævintýraþrá, þörf á nýjum áskorunum og vaxtarhugarfar varð til þess að flugfreyjustarfið kallaði á hana.
Vellíðan, vöxtur, hugrekki og styrkleikar eru henni mjög hugleikin og hefur hún í gegnum nám og störf lagt sig fram af einlægni í að virkja og aðstoða aðra í að vaxa og blómstra.
Ingi Sturla Þórisson stofnandi og eigandi
Ingi Sturla Þórisson hefur í störfum sínum í flug-, orku- og fjármálageiranum leitt teymi til árangurs í mörg ár. Ingi Sturla er menntaður í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands en hefur verið iðinn við að afla sér aukinnar menntunar á þeim sviðum sem honum eru hvað mest hugleikin og er hann til að mynda viðurkenndur markþjálfi, hefur starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og með meistaradiplómu í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun HÍ
Með áratuga reynslu úr mörgum geirum atvinnulífsins hefur Ingi Sturla lært að samskipti eru upphaf og endir alls. Orð eru nefnilega til alls fyrst. Það að geta komið hugmyndum, skoðunum og tilfinningum sínum í orð á uppbyggilegan og mennskan hátt ásamt því að geta sett sig í spor annarra hefur gríðarlega jákvæð áhrif á samvinnu og árangur.