Konur - Kraftur og kyrrð

Um námskeiðið:

Þetta tveggja skipta valdeflandi námskeið er ætlað öllum konum sem vilja staldra við, horfa inn á við og rækta með sér innri styrk, auka sjálfstraust og sjálfsumhyggju í hlýlegu umhverfi.


Það sem unnið er með á námskeiðinu:

  • Efla sjálfstraust og hugrekki til að taka meðvitaðar ákvarðanir í takt við eigin gildi
  • Rækta heilbrigða og stöðuga sjálfsmynd með hagnýtum verkfærum
  • Dýpka tengsl við sjálfa sig og byggja upp sjálfsumhyggju sem nærir andlega vellíðan
  • Læra að takast á við áskoranir með auknu jafnvægi og ró
  • Að efla jákvæðar tilfinningar sem stuðla að aukinni vellíðan og hamingju


Ávinningur námskeiðsins:

Námskeiðið býður þátttakendum upp á tækifæri til að skoða hvernig má skapa meira jafnvægi milli krafts og kyrrðar í daglegu lífi. Lögð er áhersla á að efla innri ró, auka færni til að takast á við streitu og óvissu, og styrkja sjálfsmynd með dýpri innsýn í eigin gildi og stefnu í lífinu. Þátttakendur fá að kynnast hagnýtum aðferðum sem hægt er að nýta í mismunandi aðstæðum – aftur og aftur


Tímasetning: 

Námskeiðið verður haldið á fimmtudögum frá kl. 19-21, 4. og 11. september nk.


Verð: 27.900 kr.


Leiðbeinendur:  Sigrún Líndal Pétursdóttir og Sóley Eiríksdóttir

Skrá á námskeið

Sóley Eiríksdóttir

Sóley Eiríksdóttir er markþjálfi með sérhæfingu í jákvæðri sálfræði, sjálfsvinnu og valdeflingu kvenna. Hún er með BA-gráðu í sagnfræði, M.Sc. í verkefnastjórnun og diplómu í jákvæðri sálfræði. Sóley nýtir þessa þekkingu ásamt djúpri innsýn og reynslu til að styðja einstaklinga sem vilja tengjast eigin styrk, tilgangi og sjálfsást.


Árið 1995 lifði Sóley af snjóflóðið á Flateyri þar sem hún var grafin undir snjó í níu klukkustundir. Sú djúpa og umbreytandi lífsreynsla varð upphafspunktur í sjálfsvinnu og andlegri vakningu sem hefur mótað bæði líf hennar og starfsferil. Í dag er hún þekkt fyrir hlýja nærveru, sterkt innsæi og hæfni til að halda rými fyrir djúpar umbreytingar og vöxt


Sigrún Líndal Pétursdóttir stofnandi og eigandi

Sigrún Líndal Pétursdóttir er með B.A. gráðu í sálfræði og M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Vorið 2025 lauk Sigrún diplómanámi á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands.


Sigrún hefur áralanga reynslu af vinnu með börnum og starfaði í mörg ár á leikskóla meðal annars sem deildarstjóri og aðstoðarleikskólastjóri. Hún hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Dale Carnegie og aðstoðarkennari í Sáttamiðlun sem kennd var í meistaranámi í Háskóla Íslands. Síðustu ár hefur hún starfað sem flugfreyja en ævintýraþrá, þörf á nýjum áskorunum og vaxtarhugarfar varð til þess að  flugfreyjustarfið kallaði á hana.


Vellíðan, vöxtur, hugrekki og styrkleikar eru henni mjög hugleikin og hefur hún í gegnum nám og störf lagt sig fram af einlægni  í  að virkja og aðstoða aðra í að vaxa og blómstra.